VIking hefur hafið viðræður við Jón Daða Böðvarsson um framlengingu á samningi hans en Arne Larsen Økland framkvæmdastjóri félagsins staðfestir þetta í samtali við Rogalands Avis.
Jón Daði hefur verið frábær í undankeppni EM með íslenska landsliðinu og ekki er ólíklegt að mörg félög hafi augastað á honum.
Samningur Jóns Daða við Viking rennur út eftir eitt ár en norska félagið vill ganga frá nýjum samningi.

,,Jón Daði Böðvarsson hefur verið einn af bestu leikmönnum Ísland í undankeppni EM gegn Tyrklandi, Lettlandi og Hollandi," sagði Økland.
,,Hann hefur líka verið allt annar leikmaður fyrir okkur á öðru ári sínu hjá félaginu heldur en á síðasta tímabili."
Athugasemdir