Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   sun 23. október 2016 17:50
Jóhann Ingi Hafþórsson
Mourinho skammaði Conte eftir leik: Þetta var niðurlægjandi
Mourinho í þann mund sem hann skammar Conte.
Mourinho í þann mund sem hann skammar Conte.
Mynd: Getty Images
Jose Mourinho, þjálfari Manchester United, var pirraður út í kollega sinn hjá Chelsea, Antonio Conte í eftir 4-0 tap United á Stamford Bridge.

United átti aldrei séns í Chelsea í dag og var sigurinn aldrei í hættu.

Conte er mjög líflegur á hliðarlínunni er liðið hans er að spila og það var engin breyting á í dag. Í stöðunni 4-0 var Conte ennþá að fagna og að hvetja stuðningsmenn Chelsea til að láta heyrast meira í sér.

Mourinho var ekki sáttur við það og vildi meina að Ítalinn hafi sýnt sér vanvirðingu. Hann fór til hans eftir leik og sagði í eyra hans; „Ekki fagna svona í stöðunni 4-0. Það er í lagi í 1-0 en ekki 4-0, það er niðurlægjandi."




Athugasemdir
banner
banner
banner
banner