Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 23. október 2016 17:35
Kristófer Kristjánsson
Mourinho: Þessi leikur byrjaði 1-0
Mourinho að reyna koma skilaboðum til sinna manna
Mourinho að reyna koma skilaboðum til sinna manna
Mynd: Getty Images
„Við gerðum ótrúleg mistök; einstaklingsmistök sem þú verður að borga fyrir. Fótboltaleikir byrja yfirleitt 0-0, þessi byrjaði 1-0," sagði Jose Mourinho, þjálfari Manchester United, eftir að hafa verið niðurlægður af sínu gamla félagi.

Það tók Chelsea aðeins hálfa mínútu að brjóta ísinn, í gegnum Spánverjan Pedro, eftir slæm mistök Chris Smalling í vörn United. Heimamenn litu ekki til baka eftir þessa leifturhröðu byrjun og bættu við þremur mörkum fyrir leikslok,

„Við byrjuðum illa strax á fyrstu sekúndu. Við komum með áætlun en þú getur ekki fengið á þig mörk eins og við gerðum í dag. Við komum til að sækja, til að skapa færi og við sýndum það eftir fyrsta markið. Svo fáum við á okkur annað og þriðja markið úr skyndisóknum; Ef við hefðum minnkað muninn í 2-1, eins og litlu munaði um, þá hefði leikurinn þróast öðruvísi." sagði Mourinho sem er ekki farinn að örvænta en veit samt sem er að liðið þarf að fara vinna fleiri leiki.

„Við fengum núll stig og erum núna sex frá toppsætinu, þremur frá því fjórða. Núna þurfum við að fara vinna leiki til að minnka bilið sem verður ekki auðvelt en eitthvað sem við þurfum að gera. Við höfum fengið tvö stig af níu mögulegum úr síðustu þrem leikjum, núna þurfum við að fara sækja fleiri stig," sagði Portúgalinn geðþekki.
Athugasemdir
banner
banner
banner