Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 23. október 2016 20:00
Kristófer Kristjánsson
Ryan Giggs: Ekki skiptast á treyjum og bröndurum eftir stórtap
Ryan Giggs var ekki sáttur með sína gömlu félaga í dag
Ryan Giggs var ekki sáttur með sína gömlu félaga í dag
Mynd: Getty Images
Ryan Giggs var ekki sáttur með hegðun sumra leikmanna Manchester United eftir að fjendur þeirra í Chelsea niðurlægðu þá 4-0 á Stamford Bridge í dag.

Eftir að lokaflautið gall skiptust einhverjir leikmenn á treyjum og tóku létt spjall, full glaðlyndir að mati Giggs.

„Þú getur tapað fótboltaleik en þegar það gerist, ekki skiptast á treyjum og bröndurum við andstæðinginn," sagði Giggs.

„Kallið mig gamaldags en þetta er rangt. Óskaðu andstæðingnum til hamingju, þakkaðu stuðningsmönnum þínum fyrir komuna og farðu af vellinum," bætti sá velski við.


Athugasemdir
banner
banner