Ögmundur Kristinsson og félagar í Hammarby máttu þola 4-2 tap gegn Elfsborg á heimavelli sínum í sænsku úrvalsdeildinni í dag.
Birkir Már Sævarsson og Arnór Smárason voru ekki með Hammarby að þessu sinni.
Elfsborg byrjaði með látum því staðan var orðin 3-0 eftir 26 mínútur en tvö mörk í seinni hálfleik komu Hammarby aftur inn í leikinn.
Sjötta markið kom hins vegar frá leikmanni Elfsborg í uppbótartíma og var 4-2 sigur því staðreynd.
Hammarby er sem stendur í 8. sæti sænsku úrvalsdeildarinnar með 38 stig eftir 27 leiki.
Athugasemdir