Ítalskir fjölmiðlar segja að Leonardo Bonucci hafi boðist til að láta fyrirliðaband AC Milan af hendi eftir 2-0 tap gegn Sampdoria í síðasta mánuði.
„Ef ég er vandamálið þá er bandið hérna," á Bonucci að hafa sagt í klefanum eftir tapið.
„Ef ég er vandamálið þá er bandið hérna," á Bonucci að hafa sagt í klefanum eftir tapið.
Sagt er að varnarmaðurinn hafi þá reynt að rétta Riccardo Montolivo, fyrrum fyrirliða Milan, bandið en hann hafi neitað að taka við því.
Bonucci gekk í raðir Milan frá Juventus í sumar og var samstundis gerður að fyrirliða.
AC Milan hefur ekki farið vel af stað á tímabilinu og er í ellefta sæti. Bonucci mun missa af næstu tveimur leikjum eftir að hafa fengið rautt spjald í markalausum leik gegn Genoa á sunnudaginn.
Athugasemdir