Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 23. október 2017 10:39
Elvar Geir Magnússon
Búist við því að Koeman stýri Everton á miðvikudag
Illa gengur hjá Everton.
Illa gengur hjá Everton.
Mynd: Getty Images
BBC segir að búist sé við því að Ronald Koeman verði við stjórnvölinn hjá Everton á miðvikudaginn þegar liðið leikur gegn Chelsea í fjórðu umferð deildabikarsins.

Miklar vangaveltur hafa verið um framtíð Koeman og talað um að hann gæti misst starfið eftir 5-2 ósigurinn gegn Arsenal í gær.

Hollendingurinn stýrði æfingu Everton í morgun eins og ekkert hefði í skorist. Þá birta ensku götublöðin myndir af Koeman í góðum gír með vinum sínum í gærkvöldi. Þar virðist pressan ekki vera farin að segja til sín.

Everton hefur aðeins unnið tvo af níu leikjum sínum í ensku úrvalsdeildinni á þessu tímabili og er í 18. sæti. Koeman hefur sagt að hann trúi því að hann geti snúið gengi liðsins við.

Koeman fékk stuðningsyfirlýsingu frá Farhad Moshiri, eiganda Everton, eftir tap gegn Burnley á dögunum en síðan hefur liðið gert jafntefli við Brighton og tapað gegn Lyon og Arsenal.

Koeman tók við Everton í fyrrasumar og stýrði liðinu í sjöunda sæti ensku úrvalsdeildarinnar á fyrsta tímabili. Liðið komst í Evrópudeildina en þar hefur liðið einnig farið illa af stað á þessu tímabili og á litla möguleika á að komast upp úr riðli sínum.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 34 24 5 5 82 26 +56 77
2 Liverpool 33 22 8 3 75 32 +43 74
3 Man City 32 22 7 3 76 32 +44 73
4 Aston Villa 34 20 6 8 71 50 +21 66
5 Tottenham 32 18 6 8 65 49 +16 60
6 Newcastle 32 15 5 12 69 52 +17 50
7 Man Utd 32 15 5 12 47 48 -1 50
8 West Ham 34 13 9 12 54 63 -9 48
9 Chelsea 32 13 8 11 61 57 +4 47
10 Brighton 32 11 11 10 52 50 +2 44
11 Wolves 33 12 7 14 46 53 -7 43
12 Fulham 34 12 6 16 50 54 -4 42
13 Bournemouth 33 11 9 13 48 60 -12 42
14 Crystal Palace 33 9 9 15 42 56 -14 36
15 Brentford 34 9 8 17 52 59 -7 35
16 Everton 33 10 8 15 34 48 -14 30
17 Nott. Forest 34 7 9 18 42 60 -18 26
18 Luton 34 6 7 21 47 75 -28 25
19 Burnley 34 5 8 21 37 69 -32 23
20 Sheffield Utd 33 3 7 23 31 88 -57 16
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner