Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
Haraldur Freyr: Leikurinn spilast eins og við vildum
Höskuldur: Fannst þeir ofan á í grunnatriðum leiksins
Sami Kamel: Þurftum bara að beisla þessa jákvæðu orku
Dóri Árna: Ótrúlega andlaust og ekki líkt liðinu sem ég þekki
Hallgrímur Jónasson: Við stöndum saman sem lið
Árni Freyr: Mér fannst þetta vera víti
Breki Baldurs: Ég er mjög hrifinn af þessu kerfi
Arnar Gunnlaugs: Ótrúlegasta mark sem ég hef séð á þessum velli
Sveinn Þór: Ég held að við höfum aðeins sjokkerað þá pínulítið
Baldvin Borgars: Virkilega sáttur með frammistöðuna hjá mínum mönnum
Rúnar Kristins: Þeir lögðu mikla vinnu í þetta og veittu okkur mjög erfiðan leik
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
   mán 23. október 2017 09:00
Mist Rúnarsdóttir
Znojmo
Katrín Ásbjörns: Vitum að þær eru á uppleið
Katrín á æfingu í Þýskalandi
Katrín á æfingu í Þýskalandi
Mynd: Anna Þonn
„Við erum mjög góðar. Það var góður sigur í síðasta leik. Margt jákvætt sem við gerðum þar og okkur hlakkar til að spila á þriðjudaginn,“ sagði landsliðskonan Katrín Ásbjörnsdóttir í samtali við Fótbolta.net í Znojmo í gær. Framundan er mikilvægur landsleikur gegn Tékkum á þriðjudag og stelpurnar okkar í fullum undirbúningi.

„Í dag (gær) er búið að vera rólegt. Við erum búnar að vera að ná þreytu úr leikmönnum þannig að við verðum klárar á þriðjudaginn,“ sagði Katrín.

Hvað vitum við um Tékkneska liðið?

„Mjög lítið. Það er sannleikurinn. Við vitum að þær eru á uppleið og þær eru með mjög gott lið. Flestar þeirra leikmenn spila í Slavia Prag og Sparta Prag og þessi lið eru í Meistaradeildinni. Það segir ýmislegt. Við megum búast við erfiðum leik á þriðjudaginn og við þurfum að vera fókuseraðar á okkar.“

Katrín leikur með Stjörnunni sem er komin í 16-liða úrslit Meistaradeildarinnar og drógst þar gegn Slavia Prag. Hún er því á leið fljótlega aftur til Tékklands og við spurðum hvort hún væri ekki að verða sérfræðingur í tékkneskum fótbolta.

„Ég veit það ekki,“ svaraði Katrín og brosti. „Það verður gaman að mæta þeim en við þurfum að fókusera á verkefnið á þriðjudaginn og svo bíður hitt okkar Öglu Maríu þegar við komum heim. Við tökum eitt fyrir í einu. Það eru Tékkarnir á þriðjudaginn og við þurfum að taka þessi þrjú stig.“
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner