mán 23. október 2017 12:33
Magnús Már Einarsson
Koeman rekinn frá Everton (Staðfest)
Búið spil.
Búið spil.
Mynd: Getty Images
Ronald Koeman, stjóri Everton, hefur verið rekinn úr starfi en félagið staðfesti þetta nú rétt í þessu.

Everton tapaði 5-2 gegn Arsenal á heimavelli í gær. Liðið hefur einungis unnið tvo af fyrstu níu leikjum sínum á tímabilinu og situr í 18. sæti í ensku úrvalsdeildinni.

Koeman tók við Everton í fyrrasumar og stýrði liðinu í sjöunda sæti ensku úrvalsdeildarinnar á fyrsta tímabili. Liðið komst í Evrópudeildina en þar hefur liðið einnig farið illa af stað á þessu tímabili og á litla möguleika á að komast upp úr riðli sínum.

Koeman keypti Gylfa Þór Sigurðsson frá Swansea á 45 milljónir punda í sumar en Gylfi fær ný nýjan stjóra.

„Formaðurinn Bill Kenwright, stjórnarmenn og aðaleigandinn Farhad Moshiri vilja allir þakka Ronald fyrir þjónustu hans hjá félaginu undanfarna 16 mánuði og fyrir að stýra liðinu í 7. sæti í ensku úrvalsdeildinni á síðasta tímabili," sagði í yfirlýsingu frá Everton nú rétt í þessu.

Everton mætir Chelsea í enska deildabikarnum á miðvikudaginn en ekki hefur verið tilkynnt hver stýrir liðinu þar.



Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 28 20 4 4 70 24 +46 64
2 Liverpool 28 19 7 2 65 26 +39 64
3 Man City 28 19 6 3 63 28 +35 63
4 Aston Villa 29 17 5 7 60 42 +18 56
5 Tottenham 28 16 5 7 59 42 +17 53
6 Man Utd 28 15 2 11 39 39 0 47
7 West Ham 29 12 8 9 46 50 -4 44
8 Brighton 28 11 9 8 50 44 +6 42
9 Wolves 28 12 5 11 42 44 -2 41
10 Newcastle 28 12 4 12 59 48 +11 40
11 Chelsea 27 11 6 10 47 45 +2 39
12 Fulham 29 11 5 13 43 44 -1 38
13 Bournemouth 28 9 8 11 41 52 -11 35
14 Crystal Palace 28 7 8 13 33 48 -15 29
15 Brentford 29 7 5 17 41 54 -13 26
16 Everton 28 8 7 13 29 39 -10 25
17 Luton 29 5 7 17 42 60 -18 22
18 Nott. Forest 29 6 7 16 35 51 -16 21
19 Burnley 29 4 5 20 29 63 -34 17
20 Sheffield Utd 28 3 5 20 24 74 -50 14
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner