Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
banner
   mán 23. október 2017 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Myndband: Þurftu að draga grátandi barn af vellinum
Mynd: Getty Images
Lazio hafði betur gegn Cagliari með þremur mörkum gegn engu er liðin mættust í Serie A í gærkvöldi.

Fyrir leikinn þurfti þó að draga einn af lukkustrákunum grátandi af velli því hann vildi ekki yfirgefa svæðið, heldur vildi hann vera hjá pabba sínum, varnarmanninum Bastos.

„Þetta var sonur Bastos sem vildi ekki yfirgefa völlinn," útskýrði Simone Inzaghi, þjálfari Lazio, á Mediaset Premium.

„Ég sagði honum að taka strákinn oftar með, hann gæti verið okkur til lukku, sérstaklega í ljósi þess að Bastos skoraði sjaldgæft mark!"



Athugasemdir
banner
banner