Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
Bjarni Jó: Nýttum færin okkar illa
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
   mán 23. október 2017 14:30
Mist Rúnarsdóttir
Znojmo
Sif: Er með harðsperrur í maganum
Sif tekur eitt af fjölmörgum innköstum gegn Þýskalandi
Sif tekur eitt af fjölmörgum innköstum gegn Þýskalandi
Mynd: Fotbolti.net - Anna Þonn
„Við fengum frí frá líkamlegri æfingu en maður er með hausinn skarpan og við tókum góðan fund í hádeginu í dag (í gær). Það var svona dagurinn,“ sagði Sif Atladóttir í samtali við Fótbolta.net á hóteli íslenska landsliðsins í Znojmo í gær. Íslenska liðið fékk frí frá fótboltaæfingu í gær en fundaði um Tékkaleikinn sem verður spilaður á morgun.

Að sögn Sifjar eru íslensku leikmennirnir komnar niður á jörðina eftir sigurinn stóra gegn Þýskalandi.

„Við vitum hvaða verkefni bíður og þetta var bara eitt skref í áttina að því sem við viljum gera.“

Það mæddi mikið á Sif í þeim leik og hún tók fjölmörg af sínum einkennis innköstum. Við spurðum Sif hvort hún hefði tölu á þeim og hvað hún hefði unnið mikinn tíma fyrir íslenska liðið með því að gefa sér tíma í köstin.

„Ég er búin að horfa á leikinn og þau voru ansi mörg. Ég er með góðar harðsperrur í maganum. Það segir mér ýmislegt. Það er ekki auðveld að fá svona miklar harðsperrur í magann. Það væri gaman að sjá statistíkina. Freysi sagði að ég náði allaveg nokkrum sekúndum í fyrri hálfleik“, sagði Sif brosandi.

Hvað varðar Tékkaleikinn á morgun þá er langt síðan að þjóðirnar mættust síðast. Það var fyrir tíð Sifjar í landsliðinu, fyrir 11 og 12 árum síðan.

„Dagný var að segja mér að við höfum spilað tvisvar við Tékkana. Það var í undankeppni HM 2005 og 2006. Áður en að ég kem inn. Þær eru sterkar og við höfum séð smá klippur frá þeim. Þær eru kvikar og þetta verður mjög töff leikur,“ sagði Sif að lokum.

Hægt er að horfa á viðtalið í heild sinni í spilaranum hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner
banner