Zulte Waregem tapaði fyrir Kortrijk með þremur mörkum gegn einu í belgísku deildinni í kvöld.
Ólafur Ingi Skúlason var í byrjunarliði Zulte Waregem gegn Kortrijk í kvöld en honum var skipt af velli á 82. mínútu.
Gestirnir í Zulte Waregem komust yfir í leiknum en heimamönnum tókst að koma til baka og klára leikinn með þremur mörkum.
Zulte Waregem er í fjórtánda sæti með 13 stig eftir fimmtán leiki en liðið er með jafnmörg stig og Cercle Brugge sem er í fallsæti.
Athugasemdir