Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 23. nóvember 2014 23:27
Brynjar Ingi Erluson
Di Natale við það að uppfylla ósk föður síns heitins
Antonio Di Natale
Antonio Di Natale
Mynd: Getty Images
Antonio Di Natale, framherji Udinese á Ítalíu, nálgast hinstu ósk föður hans heitins, en hann skoraði sitt 200. mark í Seríu A í dag.

Di Natale, sem er 37 ára gamall, hefur verið einn öflugasti markaskorari Seríu A undanfarin ár en hann var markahæstur bæði árið 2010 og 2011.

Hann skoraði mark númer 200 gegn Chievo Verona í 1-1 jafntefli en hann er einungis fimm mörkum frá Roberto Baggio.

Faðir Di Natale lést í október síðastliðnum en hans hinsta ósk var að sonurinn myndi jafna Roberto Baggio að mörkum.

Antonio er nú fimm mörkum frá því að jafna met Baggio en hann greindi frá því eftir andlát föður hans að hann muni ekki leggja skóna á hilluna fyrr en hann hefur náð að uppfylla óskina.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner