Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
banner
   sun 23. nóvember 2014 10:44
Elvar Geir Magnússon
Van Persie snerti boltann 12 sinnum - Þrisvar úr hornum
Hér má sjá hvar á vellinum Van Persie kom við boltann.
Hér má sjá hvar á vellinum Van Persie kom við boltann.
Mynd: 101greatgoals.com
Robin van Persie hefur verið langt frá sínu besta á þessu tímabili þó hann hafi greinilega fullt traust vinar síns Lous van Gaal.

Van Persie fær alltaf að byrja hjá Manchester United þegar hann er heill, sama hvernig frammistaða hans hefur veirð.

Ekki átti hollenski sóknarmaðurinn góðan leik í 2-1 sigri United gegn hans fyrrum vinnuveitendum í Arsenal.

Nú hefur verið tekin saman sú ótrúlega tölfræði að á 75 mínútum snerti Van Persie boltann aðeins 12 sinnum, þar af þrisvar þegar hann tók hornspyrnur!

Það kom engum sem horfði á leikinn á óvart þegar Van Persie var tekinn af velli fyrir James Wilson þegar stundarfjórðungur var eftir.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner