Belgíski varnarmaðurinn, Thomas Vermaelen, verður ekki með liðinu gegn APOEL í Meistaradeild Evrópu á þriðjudag vegna meiðsla.
Vermaelen gekk til liðs við Barcelona í sumar frá Arsenal en hann á enn eftir að þreyta frumraun sína með félaginu.
Hann hefur verið að glíma við meiðsli undanfarna mánuði en nú er ljóst að hann spilar ekki gegn APOEL í Kýpur á þriðjudag.
Hann meiddist á nára á æfingu félagsins og því þarf hann enn að bíða eftir að spila sinn fyrsta leik.
Athugasemdir