Hollenska stórveldið PSV Eindhoven hefur nýtt sér ákvæði í samningi Alberts Guðmundssonar og framlengt samninginn til ársins 2019.
Þessi 20 ára gamli sóknarmaður hefur farið á kostum með Jong PSV í hollensku B-deildinni í vetur.
Þá hefur Albert fengið smjörþefinn af því að spila með aðalliðinu en hann hefur komið við sögu í þrem leikjum með PSV í vetur
Albert gekk til liðs við PSV frá Heerenveen árið 2015 en hann hefur verið í atvinnumennsku frá 16 ára aldri.
Athugasemdir