Guimaraes, Isak, Kimmich, Diaz, Branthwaite, Mainoo og fleiri góðir í slúðri dagsins
   fim 23. nóvember 2017 17:00
Magnús Már Einarsson
Cahill: Luiz getur hjálpað Christiansen mikið
David Luiz.
David Luiz.
Mynd: Getty Images
Gary Cahill, varnarmaður Chelsea, telur að David Luiz geti hjálpað danska varnarmanninum Andreas Christensen að bæta sig ennþá frekar.

David Luiz sneri aftur í vörn Chelsea í 4-0 sigri á Qarabag í gær eftir að hafa verið utan liðs í síðustu tveimur leikjum. Christensen tók sæti hans í þeim leikjum.

„David kom aftur inn og stóð sig vel. Andreas er eins og yngri útgáfa af honum," sagði Cahill.

„Ég tel að David geti hjálpað Andreas mikið. Hann hefur staðið sig vel í fremstu röð og unnið marga titla."

„David er mjög reyndur varnarmaður og hæfileikar Andreas eru svipaðir. Ég tel að hann (Luiz) geti leiðbeint honum mjög mikið eins og hann hefur gert hingað til."

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner