Basel vann óvæntan 1-0 sigur á Manchester United í A-riðli Meistaradeildar Evrópu þegar liðin áttust við í Sviss í gærkvöldi.
Leikurinn var markalaus allt þar til á 89.mínútu þegar Michael Lang skoraði fyrir heimamenn og tryggði þeim mikilvægan sigur.
Ensk lið hafa oft lent í vandræðum með Basel í gegnum tíðina en Man Utd komst nálægt því að gera það sem engu ensku liði hefur tekist hingað til.
Það er að halda hreinu gegn Basel í Sviss. Fjórtán sinnum hefur Basel fengið heimsókn frá ensku liði í Evrópukeppni og alltaf hefur þeim tekist að skora.
14 - No English side has ever managed to keep a clean sheet on the road against Basel in European competition (14 such fixtures). Curse.
— OptaJoe (@OptaJoe) November 22, 2017
Athugasemdir