Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
   fim 23. nóvember 2017 16:20
Elvar Geir Magnússon
Jóhann Helgi í Grindavík (Staðfest)
Jónas formaður Grindavíkur, Jóhann Helgi og þjálfarinn Óli Stéfán.
Jónas formaður Grindavíkur, Jóhann Helgi og þjálfarinn Óli Stéfán.
Mynd: Grindavík
Jóhann Helgi Hannesson hefur skrifað undir tveggja ára samning við Grindavík en þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu.

Jóhann Helgi er 27 ára og hefur allan sinn feril leikið með Þór en hann hefur skorað 61 mark í 207 deildar og bikarleikjum með félaginu á ferli sínum.

Jóhann skoraði sex mörk í Inkasso-deildinni í sumar. Árið 2014 skoraði hann sjö mörk í Pepsi-deildinni þegar Þórsarar féllu.

Grindvíkingar misstu markahrókinn Andra Rúnar Bjarnason til Helsingborg í Svíþjóð á dögunum.

Grindavík hafnaði í fimmta sæti Pepsi-deildarinnar í sumar, flottur árangur eftir að liðið komst upp úr Inkasso-deildinni árið á undan.
Athugasemdir
banner
banner