Juan Mata segist hafa áhuga á að feta í fótspor Ryan Giggs og spila fótbolta til fertugs.
Mata er 29 ára gamall en samningur hans við Manchester United rennur út næsta sumar. Félagið á þó kost á að framlengja þann samning um eitt ár.
Mata er 29 ára gamall en samningur hans við Manchester United rennur út næsta sumar. Félagið á þó kost á að framlengja þann samning um eitt ár.
Aðspurður hvort hann sé til í að gera nýjan langan samning við United sagði Mata: „Af hverju ekki? Ég er 29 ára og get vonandi spilað fótbolta í nokkur ár í viðbót."
„Það væri frábært að geta spilað til fertugs eins og Ryan Giggs. Það er samt ennþá svolítið langt í það, 11 ár."
„Þú veist aldrei hvað getur gerst í fótbolta og í lífinu en tilfinning mín núna er þannig að ég er ánægður hér og myndi ekki eiga í vandræðum með að vera hér í lengri tíma."
Athugasemdir