Marouane Fellaini verður samningslaus í sumar og er PSG búið að bjóða honum fjögurra ára samning, samkvæmt Mirror, sem fékk fréttina hjá Manchester Evening News.
Þetta kemur mörgum á óvart þar sem franska stórliðið er þegar með afar öflugan leikmannahóp.
Þetta kemur mörgum á óvart þar sem franska stórliðið er þegar með afar öflugan leikmannahóp.
Fellaini hefur staðið sig vel á tímabilinu en missti af tveimur vikum vegna meiðsla í október.
PSG er á toppi frönsku deildarinnar, með sex stiga forystu á Monaco eftir 13 umferðir.
Félagið hefur harma að hefna eftir að Monaco fékk 95 stig og vann deildina í vor.
Athugasemdir