Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 23. nóvember 2017 06:00
Arnar Geir Halldórsson
Óttast að meiðsli Thiago séu alvarleg
Thiago Alcantara
Thiago Alcantara
Mynd: Getty Images
Jupp Heynckes, stjóri Bayern Munchen, var brúnaþungur þrátt fyrir sigur á Anderlecht í Meistaradeild Evrópu í gærkvöldi.

Einn af mikilvægari leikmönnum liðsins og einn af bestu miðjumönnum heims, Thiago Alcantara, þurfti nefnilega að yfirgefa völlinn vegna meiðsla undir lok fyrri hálfleiks.

Arjen Robben fór sömuleiðis af velli vegna meiðsla í upphafi síðari hálfleiks.

„Við erum smeykir á meðan við bíðum eftir niðurstöðum Thiago. Þetta virtust alvarleg vöðvameiðsli. Robben taldi sín meiðsli ekki vera alvarleg en við verðum að bíða og sjá," sagði Heynckes.
Athugasemdir
banner