Wayne Rooney var fyrirliði Everton í kvöld í fjarveru Phil Jagielka og Leighton Baines.
Everton fékk Atalanta í heimsókn í Evrópudeildinni þar sem heimamenn voru ekki að spila upp á neitt nema stoltið. Gestirnir mættu með sterkt lið til leiks, enda í baráttunni um toppsæti riðilsins.
Everton fékk Atalanta í heimsókn í Evrópudeildinni þar sem heimamenn voru ekki að spila upp á neitt nema stoltið. Gestirnir mættu með sterkt lið til leiks, enda í baráttunni um toppsæti riðilsins.
Ítalirnir voru betri stærstan part leiksins og opnuðust flóðgáttirnar á lokakaflanum. Leiknum lauk með 5-1 sigri Atalanta á Goodison Park.
„Við vorum ekki að spila uppá neitt í kvöld nema stoltið. Þetta var mjög sárt tap, við erum allir miður okkar," sagði fyrirliðinn.
„Það er búin að vera jákvæð breyting á liðinu, við höfum verið að standa okkur betur ef leikurinn í kvöld er ekki talinn með. Við þurfum að einbeita okkur að halda áfram að klifra upp töfluna í deildinni.
„David Unsworth hefur verið frábær, stemningin í hópnum er góð og við erum byrjaðir að ná jákvæðum úrslitum. Stjórnin þarf að taka stórar ákvarðanir á næstunni."
Athugasemdir