Beint í mark er spurningaspil um fótbolta fyrir alla fjölskylduna. Spurningarnar eru styrkleikaskiptar sem auðveldar öllum að spila með – sófa sérfræðingum jafnt sem öðrum!
Á meðal þeirra sem gefa spilið út er Jóhann Berg Guðmundsson, landsliðsmaður Íslands og leikmaður Burnley í ensku úrvalsdeildinni.
Á Facebook síðu Beint í mark er nú hægt að vinna spil sem Aron Einar Gunnarsson, Gylfi Þór Sigurðsson og Jóhann Berg Guðmudsson árituðu. Auk þess fylgir sérhönnuð Beint í mark treyja.
Smelltu hér til að taka þátt i leiknum
Beint í mark er komið í 70 verslanir um allt land Þú finnur Beint í mark í eftirfarandi verslunum: Bónus, Hagkaup, Nettó, Pennanum, Elko, Byko, Kjörbúðum, Spilavinum, Jóa Útherja og Ozone Akranesi“
Tæplega þrjú þúsund spurningar eru í spilinu og er þeim skipt í fimm flokka.
Spurningunum er síðan skipt upp í þrjá styrkleikaflokka og því eiga allir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi, ungir sem aldnir.
Ef mikill getumunur er á keppendum er auðvelt að breyta stigagjöfinni og jafna leikinn. Sá sem er fróðari um fótbolta er látinn svara spurningum úr flokki tvö eða þrjú á meðan aðrir sem minna vita svara spurningum úr auðveldasta flokknum, flokki 1. Allir fá 1 stig fyrir rétt svar.
Smelltu hér til að taka þátt i leiknum
Athugasemdir