Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 24. janúar 2015 20:34
Elvar Geir Magnússon
Brendan Rodgers: Mér fannst við frábærir
Brendan Rodgers var sáttur.
Brendan Rodgers var sáttur.
Mynd: Getty Images
„Þetta var afar góður leikur. Ég hafði gaman af honum, andrúmsloftið var frábært og bæði lið eiga hrós skilið," sagði Brendan Rodgers, stjóri Liverpool, eftir markalaust jafntefli gegn Bolton í kvöld.

Liðin þurfa því að mætast aftur í ensku bikarkeppninni.

„Mér fannst við frábærir. Við gerðum allt nema að skora. Ég er mjög stoltur af liðinu. Við vorum ógnandi og markvörður þeirra átti nokkrar frábærar vörslur."

„Við erum enn með í keppninni sem er mikilvægt. Við viljum gera vel í þessari keppni. Það eru engir leikir auðveldir eins og sýndi sig í úrslitum kvöldsins. Ég hef ekki yfir neinu að kvarta."
Athugasemdir
banner
banner
banner