Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   lau 24. janúar 2015 15:32
Arnar Geir Halldórsson
Fótbolta.net mótið: Selfoss fór létt með Ægi
Ingi Rafn setti tvö í dag
Ingi Rafn setti tvö í dag
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Selfoss 5-1 Ægir
Mörk Selfoss: Ingi Rafn Ingibergsson (2), Þorsteinn Daníel Þorsteinsson , Magnus Ingi Einarsson , Richard Sæþór Sigurðsson
Mark Ægis: Daníel Rögnvaldsson

Selfoss og Ægir áttust við í nágrannaslag á JÁVERK-vellinum á Selfossi í hádeginu í dag.

Selfyssingar unnu öruggan sigur á Ægi. Selfoss leikur í 1.deild en Ægir í 2.deild. Ingi Rafn Ingbergsson, Þorsteinn Þorsteinsson, Magnús Einarsson og Richard Sigurðsson skoruðu fyrir heimamenn en Daníel Rögnvaldsson skoraði eina mark Ægis.

Leikurinn var í riðli 1 í B-deild Fótbolta.net mótsins en Ægir mætir HK um næstu helgi á meðan Selfyssingar leika gegn Haukum.
Athugasemdir
banner
banner
banner