Alberto Gilardino er við það að ganga til liðs við Fiorentina en hann kemur á láni frá kínversku meisturunum í Guangzhou Evergrande.
Alessandro Diamanti fór sömu leið fyrr í mánuðinum en leikmennirnir entust ekki lengi í kínverska boltanum. Gilardino spilaði 14 leiki fyrir Guangzhou en Fabio Cannavaro er þjálfari liðsins.
Gilardino gekkst undir læknisskoðun í morgun og vonast forráðamenn Fiorentina til þess að hann verði klár í slaginn þegar liðið fær Roma í heimsókn annaðkvöld. Gilardino lék fyrir Fiorentina frá 2008-2012 þar sem hann skoraði 48 mörk í 118 leikjum en kappinn á 57 landsleiki fyrir Ítalíu.
Fiorentina getur keypt Gilardino þegar lánssamningurinn klárast. Liðið er í 6.sæti Serie A, aðeins þrem stigum frá Meistaradeildarsæti.
Athugasemdir