Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   lau 24. janúar 2015 15:49
Magnús Már Einarsson
Ólafur Karl til Haugesund á reynslu
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ólafur Karl Finsen, leikmaður Stjörnunnar, mun á morgun fara til norska félagsins Haugesund á reynslu.

Hinn 22 ára gamli Ólafur Karl mun æfa með Haugesund næstu dagana en þetta kemur fram á heimasíðu félagsins.

Ólafur Karl sló í gegn þegar Stjarnan varð Íslandsmeistari í sumar en hann varð þriðji markahæsti leikmaður Pepsi-deildarinnar.

Í lokaumferðinni skoraði hann bæði mörk Stjörnunnar í 2-1 sigri á FH en sá sigur tryggði Garðbæingum titilinn.

Haugesund endaði í ellefta sæti af sextán liðum í norsku úrvalsdeildinni á síðasta tímabili.

Sjá einnig:
Frá óreglu í Íslandsmeistaratitil á einu ári (Viðtal 9. október)
Athugasemdir
banner
banner
banner