Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   lau 24. janúar 2015 18:51
Elvar Geir Magnússon
Spánn: Messi með tvö mörk og tvær stoðsendingar
Messi var í stuði gegn Elche.
Messi var í stuði gegn Elche.
Mynd: Getty Images
Elche 0 - 6 Barcelona
0-1 Gerard Pique ('35 )
0-2 Lionel Messi ('65 , víti)
0-3 Neymar ('69 )
0-4 Neymar ('71 )
0-5 Lionel Messi ('88 )
0-6 Pedro Rodriguez ('90 )

Barcelona vann öruggan og sannfærandi sigur á Elche á Estadio Martinez Valero en leiknum var að ljúka rétt í þessu.

Gerard Pique braut ísinn fyrir Börsunga eftir aukaspyrnu en Lionel Andres Messi bætti svo við marki úr vítaspyrnu.

Messi lagði síðan upp tvö mörk fyrir Brasilíumanninn Neymar sem kláraði frábærlega. Sjálfur átti Messi eftir að bæta við marki og Neymar lagði svo upp sjött markið fyrir Pedro Rodriguez rétt fyrir leikslok.

Barcelona er einu stigi á eftir Real Madrid sem er á toppnum auk þess að eiga leik inni.


Athugasemdir
banner
banner
banner