Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 24. janúar 2015 22:49
Elvar Geir Magnússon
Spánn: Real Sociedad vann - Alfreð kom ekki við sögu
Mynd: Getty Images
Tveimur síðustu leikjum dagsins í spænsku úrvalsdeildinni er lokið.

Alfreð Finnbogason var ónotaður varamaður þegar Real Sociedad vann 1-0 sigur gegn Eibar.

Xabi Prieto skoraði eina mark leiksins en það var í skondnari kantinum og smá heppnisstimpill yfir því. Prieto skallaði boltann upp í loft og hann endaði í markinu.

Real Sociedad er í ellefta sæti deildarinnar en Eibar í því áttunda.

Þá vann Villarreal sigur gegn Levante þar sem Argentínumaðurinn ungi Luciano Vietto (á mynd) skoraði eina markið. Stórskemmtilegur leikmaður.

Villarreal er í sjötta sæti en Levante er í fallsæti.

Real Sociedad 1 - 0 Eibar
1-0 Xabi Prieto ('55 )

Villarreal 1 - 0 Levante
1-0 Luciano Vietto ('56 )
Athugasemdir
banner
banner
banner