Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mið 24. janúar 2018 06:00
Magnús Már Einarsson
Myndband: Birkir og Júlíus leggja upp mörk hjá Heerenveen
Júlíus Magnússon.
Júlíus Magnússon.
Mynd: Heerenveen
U21 árs landsliðsmaðurinn Júlíus Magnússon lagði upp fjórða markið fyrir U23 ára lið Heerenveen í 4-0 sigri á Heracles í fyrradag.

Júlíus er fyrirliði U23 ára liðs Heerenveen en liðið er á toppnum í U23 ára deildinni í Hollandi.

Birkir Heimsson var á bekknum hjá U23 ára liði Herenveen í leiknum.

Birkir er fastamaður í U19 ára liði Heerenveen en hann lagði upp mark í tapi þess gegn Volendam um helgina.

Júlíus lék með Víkingi R. og Leikni R. áður en hann fór til Heerenveen en Birkir lék í yngri flokkum Þórs.

Hér að neðan má sjá stoðsendinguna hjá Birki.
Athugasemdir
banner
banner