Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mið 24. janúar 2018 05:55
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
England í dag - Sæti í úrslitum í húfi
Mkhitaryan má ekki spila fyrir Arsenal í dag.
Mkhitaryan má ekki spila fyrir Arsenal í dag.
Mynd: Getty Images
Henrikh Mkhitaryan má ekki spila með Arsenal þegar liðið fær Chelsea í heimsókn í undanúrslitum enska deildabikarsins í kvöld. Mkhitaryan er ekki gjaldgengur með Arsenal í keppninni eftir að hafa spilað með Manchester United í henni á tímabilinu.

Mkhitaryan og Alexis Sanchez skiptu um lið á mánudag og verður þetta fyrsti leikur Arsenal eftir skiptin.

Þetta er seinni leikur Arsenal og Chelsea í undanúrslitum og er sæti í úrslitaleiknum á Wembley í húfi. Fyrri leikurinn á Stamford Bridge endaði með markalausu jafntefli.

Leikurinn í kvöld hefst 20:00 og er í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport. Sigurliðið mætir Manchester City í úrslitum.

Leikur kvöldsins:
20:00 Arsenal - Chelsea (Stöð 2 Sport)
Athugasemdir
banner
banner
banner