Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 24. janúar 2018 10:30
Magnús Már Einarsson
Mascherano til Hebei China Fortune (Staðfest)
Mynd: Getty Images
Javier Mascherano hefur formlega yfirgefið Barcelona og samið við Hebei China Fortune í kínversku úrvalsdeildinni.

Mascherano kom til Barcelona frá Liverpool fyrir sjö og hálfu ári síðan.

Síðan þá hefur Mascherano unnið 18 titla með Barcelona en hann hefur meðal annars orðið fjórum sinnum spænskur meistari auk þess sem hann hefur unnið Meistaradeildina tvívegis.

Mascherano hefur á ferli sínum bæði leikið sem miðvörður og miðjumaður.

Mascherano á 141 landsleik að baki með Argentínu en hann er ennþá í landsliðshópnum og gæti mætt Íslandi á HM í Rússlandi í sumar.
Athugasemdir
banner
banner