Cristiano Ronaldo, stórstjarna Real Madrid, missti af lokamínútunum í 7-1 sigri liðsins á Deportivo La Coruna á sunnudag.
Ronaldo skoraði fimmta og sjötta mark Real í leiknum. Síðara mark hans kom með skalla en þegar Ronaldo skoraði sparkaði Fabian Schar varnarmaður Deportivo óvart í höfuð hans.
Ronaldo fékk ljótan skurð rétt hjá auga sínu og var eiginlega stálheppinn að ekki fór mikið verr.
Sjá einnig:
Ronaldo allur út í blóði - Notaði síma til að sjá sig

Það þurfti að sauma nokkur spor hjá auganu til að loka sárinu. Ronaldo mætti svo með frekar stórt glóðarauga á æfingu hjá Madrídingum í gær eins og sjá má hér að neðan.
Hann verður þó væntanlega klár í slaginn í kvöld þegar Real Madrid mætir Leganes í spænska Konungsbikarnum
Cristiano Ronaldo shows off huge black eye in training https://t.co/ZQxiBdJ2wc pic.twitter.com/DVKypPWPq8
— Cristiano Ronaldo (@CRonaldoNews) January 23, 2018
Athugasemdir