Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 24. janúar 2018 08:50
Magnús Már Einarsson
Seri á óskalista Manchester United
Seri er 26 ára gamall.
Seri er 26 ára gamall.
Mynd: Getty Images
Manchester United er eitt af þeim félögum sem vill fá Jean Michael Seri miðjumann Nice í sínar raðir. Sky greinir frá þessu í dag.

Seri var nálægt því að ganga í raðir Barcelona síðastliðið sumar en ekkert varð af félagaskiptunum á endanum.

Michael Carrick ætlar að leggja skóna á hilluna í sumar og óvíst er hvað verður um Marouane Fellaini sem verður samningslaus eftir tímabilið.

Jose Mourinho, stjóri Manchester United, er því að skoða möguleika á að styrkja miðjuna og Seri er á óskalistanum.

Seri verður samningslaus sumarið 2019 en hann er með riftunarverð í samningi sínum upp á 33 milljónir punda. Á þessu tímabili hefur hann skorað eitt mark og lagt upp sex í 26 leikjum með Nice.
Athugasemdir
banner
banner