John Giles, fyrrum landsliðsmaður Írlands, segir að kantmaðurinn Gareth Bale sé ekki frábær leikmaður.
Írland mætir Wales í undankeppni HM í kvöld og þar verður Bale í eldlínunni með sínum mönnum í landsliðinu hjá Wales.
Írland mætir Wales í undankeppni HM í kvöld og þar verður Bale í eldlínunni með sínum mönnum í landsliðinu hjá Wales.
Bale leikur með spænska stórveldinu Real Madrid, en Giles segir að Bale verði að fara í annað lið til að komast í sama flokk og liðsfélagi sinn hjá Madrídarliðinu, Cristiano Ronaldo.
„Bale þarf að gera aðeins meira áður en ég kalla hann frábæran leikmann," sagði Giles. „Það lítur þannig út fyrir mér að hann þarf að komast frá Ronaldo til að taka þetta lokaskref."
„Ég kann mjög vel við Gareth Bale, í fyrsta lagi sem leikmann og líka sem manneskju. Ég þekki hann ekki, en allt sem hann gerir segir mér að hann sé góður drengur."
Athugasemdir