Ben Gibson, varnarmaður Middlesbrough, hefur verið kallaður inn í enska landsliðshópinn fyrir leikinn gegn Lithaén í undankeppni HM á sunnudag.
Þetta er í fyrsta skipti sem hinn 24 ára gamli Gibson er valinn í hópinn.
Þetta er í fyrsta skipti sem hinn 24 ára gamli Gibson er valinn í hópinn.
Phil Jones, varnarmaður Manchester United, dró sig fyrr í vikunni úr hópnum vegna meiðsla og í dag varð Chris Smalling að gera slíkt hið sama.
Gary Cahill er í leikbanni á sunnudaginn en hann myndaði þriggja manna vörn með Michael Keane og Smalling í 1-0 tapi gegn Þýskalandi í vináttuleik í fyrradag.
Auk Keane er miðvörðurinn John Stones í hópnum og nú hefur Gibson bæst við fyrir leikinn á sunnudag.
Athugasemdir