Klukkan 19:45 að íslenskum tíma hefst leikur Kosóvó og Íslands í undankeppni HM. Heimir Hallgrímsson hefur opinberað byrjunarliðið í leiknum.
Hér verður hægt að fylgjast með textalýsingu frá leiknum
Byrjunarliðið er eins og Fótbolti.net spáði fyrir utan eina breytingu. Heimir ákvað að hafa Jón Daða Böðvarsson á bekknum en Björn Bergmann Sigurðarson er í fremstu víglínu með Viðari Erni Kjartanssyni.
Samkvæmt mynd frá KSÍ á Emil Hallfreðs að byrja á hægri kantinum en Arnór Ingvi á þeim vinstri. Bíðum og sjáum.
Elías Már Ómarsson er utan hóps.
Byrjunarlið Íslands:
Hannes Þór Halldórsson
Birkir Már Sævarsson
Kári Árnason
Ragnar Sigurðsson
Ari Freyr Skúlason
Emil Hallfreðsson
Gylfi Þór Sigurðsson
Aron Einar Gunnarsson
Arnór Ingvi Traustason
Björn Bergmann Sigurðarson
Viðar Örn Kjartansson
Hér verður hægt að fylgjast með textalýsingu frá leiknum
Fótbolti.net er með öflugt teymi í Hollandi og er hægt að fylgjast með öllu bak við tjöldin á Snapchat (Fotboltinet), á Instagram og öðrum samskiptamiðlum okkar.
Leikir Íslands á EM:
Ísland 0-1 Frakkland
Ísland 1-2 Sviss
Ísland 0-3 Austurríki
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir