Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 24. mars 2017 11:00
Magnús Már Einarsson
Heimslisti kvenna: Ísland ekki jafn ofarlega í fimm ár
Á uppleið!
Á uppleið!
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ísland fer upp um tvö sæti á nýjum heimslista kvenna sem var kynntur í dag.

Ísland gerði jafntefli við Spán og sigraði Kína á Algarve mótinu fyrr í mánuðinum en tapaði gegn Noregi og Kína.

Fimm ár eru síðan Ísland var svona ofarlega á listanum en þá var liðið í 15. sæti.

Frakkar eru í þriðja sæti á listanum, Svisslendingar í 16. sæti og Austurríki í 24. sæti en þetta eru andstæðingar Íslands á EM í sumar.

Heimslisti FIFA
1. Þýskaland
2. Bandaríkin
3. Frakkland
4. England
5. Kanada
6-7. Japan
6-7. Svíþjóð
8. Ástralía
9. Brasilía
10. Norður-Kórea
11. Noregur
12. Holland
13. Spánn
14. Kína
15. Danmörk
16. Sviss
17. Suður-Kórea
18. Ísland
19. Ítalía
20. Nýja-Sjáland
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner