Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fös 24. mars 2017 12:30
Magnús Már Einarsson
Mánuður í endurkomu Birkis
Mynd: Getty Images
Aston Villa greinir frá því á Twitter í dag að Birkir Bjarnason verði fjarverandi í einn mánuð í viðbót vegna meiðsla sem hann varð fyrir í leik gegn Rotherham þann 4. mars síðastliðinn.

Birkir meiddist á hné og talið var að hann yrði frá í sex til átta vikur í kjölfarið.

Aston Villa segir nú að mánuður sé í endurkomu hans.

Birkir missir af sínum fyrsta mótsleik með íslenska landsliðinu síðan 2011 þegar liðið mætir Kosóvó í kvöld.

Hann ætti hins vegar að vera kominn í fínt form á nýjan leik fyrir leikinn gegn Króatíu í júní.



Athugasemdir
banner
banner
banner