fös 24. mars 2017 14:30
Magnús Már Einarsson
Simeone segir að Griezmann gæti farið
Magnaður.
Magnaður.
Mynd: Getty Images
Diego Simeone, þjálfari Atletico Madrid, segir að Antoine Griezmann muni mögulega fara frá félaginu sumar.

Frakkinn hefur skorað 22 mörk í 40 leikjum í vetur en hann hefur verið sterklega orðaður við Manchester United og fleiri félög.

Aðspurður hvort Griezmann gæti farið svaraði Simeone: „Já, því það er riftunarákvæði í samningnum. Það er ekkert öryggi."

„Síðasta sumar sagðist hann ætla að vera áfram ef ég yrði áfram. Félagið ræddi síðan við umboðsmenn hans og hann var áfram."

„Frá og með núna veit ég ekki hvað getur gerst. Hann myndi aldrei láta mig segja sér að vera áfram. Ég gerði það ekki við (Diego) Costa eða (Radamel) Falcao."

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner