Francesco Totti, goðsögn hjá Roma, segist sjá eftir tvennu á ferlinum. Hann er enn að spila með Roma, fertugur að aldri.
Það fer væntanlega að styttast í annan endann á leikmannaferli Totti, en núgildandi samningur hans rennur út eftir þetta tímabil.
Það fer væntanlega að styttast í annan endann á leikmannaferli Totti, en núgildandi samningur hans rennur út eftir þetta tímabil.
Hann hefur leikið allan sinn feril hjá Roma og er því skiljanlega goðsögn hjá ítalska félaginu. Hann var þó einu sinni nálægt því að fara til spænska stórveldisins, Real Madrid.
„Fyrir mörgum árum, þá var ég næstum því farinn til Real Madrid. Ég var mjög nálægt því að fara þangað. Ég hefði aldrei farið í annað ítalskt félag," sagði Totti.
„Ég sé eftir því að hafa ekki spilað með Ronaldo, þeim brasilíska, og að vinna ekki Meistaradeildina með Roma."
Athugasemdir