Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fös 24. mars 2017 15:00
Magnús Már Einarsson
Valsarar skoða Spánverja sem ólst upp hjá Atletico
Valsmenn skoða liðsstyrk fyrir sumarið.
Valsmenn skoða liðsstyrk fyrir sumarið.
Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson
Bikarmeistarar Vals voru í vikunni með spænska hægri bakvörðinn Oscar Del Amo á reynslu.

Del Amo skoraði eitt af mörkum Vals í 8-0 stórsigri á Gróttu í æfingaleik á þriðjudaginn.

Hinn 19 ára gamli Del Amo ólst upp hjá Atletico Madrid.

Síðastliðið sumar gekk hann síðan í raðir Sancataldese í Serie D á Ítalíu.

Sigurbjörn Hreiðarsson, aðstoðarþjálfari Vals, sagði við Fótbolta.net í dag að ekki sé búið að ákveða hvort samið verið við Del Amo eða ekki.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner