Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   lau 24. mars 2018 15:50
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Æfingaleikir: KR með sigur - Jafnt hjá Blikum og FH
Chopart gerði sigurmark KR.
Chopart gerði sigurmark KR.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Lið hér á landi eru í óðaönn að leggja lökahönd á undirbúning sinn fyrir Íslandsmótið sem fer senn að hefjast.

Í dag voru tveir æfingaleikir, Pepsi-deildarslagir.

KR lagði Keflavík, sem er nýliði í Pepsi-deildinni, á gervigrasvelli Vesturbæinga. Kennie Chopart skoraði eina mark leiksins.

Í Fífunni mætti Ólafur Kristjánsson, þjálfari FH, sínum gömlu félögum í Breiðabliki og varð niðurstaðan jafntefli. Robbie Crawford kom FH yfir en Arnór Gauti Ragnarsson jafnaði og þar við sat.

KR 1 - 0 Keflavík
1-0 Kennie Chopart

Breiðablik 1 - 1 FH
0-1 Robbie Crawford
1-1 Arnór Gauti Ragnarsson

Sjá einnig:
Ótímabær spá fyrir Pepsi-deildina

Veistu úrslit úr æfingaleikjum?
Ef þú hefur upplýsingar um úrslit æfingaleikja og markaskorara endilega sendu okkur þá tölvupóst á [email protected] eða settu úrslitin á Twitter og merktu #fotboltinet
Athugasemdir
banner
banner
banner