lau 24. mars 2018 13:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Bale orðaður við United - Giggs vill hafa hann í Madríd
Mynd: Getty Images
Ryan Giggs ein mest goðsögn í sögu Manchester United vill ekki að Gareth Bale gangi í raðir félagsins. Hann vill frekar að hann verði áfram hjá spænska stórveldinu Real Madrid.

Bale hefur verið í vandræðum með að festa sæti sitt í liðinu hjá Zinedine Zidane, en Giggs, sem er orðinn landsliðsþjálfari Wales, segir að Bale sé í góðum málum í Madríd.

„Já," sagði Giggs aðspurður að því hvort Real Madrid væri enn besti staðurinn fyrir hinn 29 ára gamla Bale. „Ég fór og sá hann spila gegn PSG (innsk. blaðamanns, í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar). Það eru ekki mörg félag sem hafa sömu áru og Real Madrid."

„Auðvitað á hann að vera þarna áfram. Hann hefur unnið Meistaradeildina þrisvar sinnum, það er magnað. Þegar þú ert hjá félagi eins og Real Madrid ertu alltaf að fara að vinna eitthvað."

Giggs er búinn að stýra Wales í einum leik en Bale skráði sig á spjöld sögunnar í þeim leik.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner