Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 24. mars 2018 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Kluivert vill sjá son sinn spila fyrir Barcelona
Mynd: Getty Images
Patrick Kluivert er stoltur af árangri sonar sins hjá Ajax. Justin Kluivert verður 19 ára í maí og hefur þegar gert 9 mörk í 38 deildarleikjum fyrir Ajax.

Justin spilar á vinstri kanti og á 42 leiki að baki fyrir yngri landslið Hollands.

„Hann hefur verið að gera mjög góða hluti hjá Ajax og er ég stoltur af honum. Hann er byrjunarliðsmaður og getur orðið afar mikilvægur leikmaður fyrir félagið kjósi hann að vera þar áfram," sagði Patrick við Omnisport.

Justin hefur verið orðaður við Manchester United og var Patrick spurður út í möguleika þess að hann fari í enska boltann.

„Hann er fullorðinn maður og getur tekið eigin ákvarðanir. Ég vil sjá hann fara til Barcelona en það er aldrei að vita."
Athugasemdir
banner
banner
banner