banner
   lau 24. mars 2018 12:40
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Zlatan hlakkar til að taka yfir Bandaríkin
Mynd: Getty Images
Eftir komu hans til Englands talaði hann um að hafa tekið yfir landið á þremur mánuðum. Nú er hann kominn til Bandaríkjanna þar sem hann hefur samið LA Galaxy.

„Ég er gífurlega spenntur. Ég veit hvað ég kem með, ég veit hvað ég get," segir Zlatan.

„Þetta er nýtt ævintýri fyrir mig - ný áskorun. Ég hlakka til að taka yfir Bandaríkin eins og ég tók yfir Evrópu."

„Ég hef unnið svo mikið eftir að hafa spilað í 20 ár í Evrópu með bestu liðum heims, með bestu leikmönnum í heimi. Nú er kominn tími á að prófa MLS," segir Zlatan sem er greinilega kominn til Los Angeles til að vinna.

Zlatan, sem á magnaðan feril að baki, keypti heilsíðu í Los Angeles Times til að boða komu sína til félagsins. Zlatan var ekki að eyða mörgum orðum í auglýsinguna.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner