„The Chosen One" borðinn á Old Trafford hefur verið rifinn niður. Borðinn umdeildi var settur upp til að sýna David Moyes stuðning.
Hópur stuðningsmanna Manchester United sem vildi fá Moyes burt lét flugvél fljúga með „Wrong One - Moyes Out" borða yfir völlinn
Hópur stuðningsmanna Manchester United sem vildi fá Moyes burt lét flugvél fljúga með „Wrong One - Moyes Out" borða yfir völlinn
David Moyes var rekinn í upphafi vikunnar og nú hefur borðinn verið tekinn niður. United mætir Norwich á laugardag og mun Ryan Giggs stýra liðinu í þeim leik þar sem hann hefur verið ráðinn til bráðabirgða.
Ekki er vitað hvað verður gert við borðann, mögulegt er að hann verði gefinn til enska fótboltasafnsins eða notaður í góðgerðarmál.
Athugasemdir