Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 24. apríl 2014 08:00
Brynjar Ingi Erluson
Cristiano Ronaldo: Ég var hræddur
Cristiano Ronaldo
Cristiano Ronaldo
Mynd: Getty Images
Cristiano Ronaldo, leikmaður Real Madrid á Spáni, segist hafa verið hræddur við að snúa aftur á völlinn er liðið lagði Bayern München með einu marki gegn engu í gær.

Karim Benzema sá til þess að Real Madrid færi með 1-0 sigur af hólmi gegn Bayern München á Santiago Bernabeu í gær en þetta var fyrri undanúrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu.

Portúgalski vængmaðurinn Cristiano Ronaldo kom til baka eftir meiðsli en þetta var hans fyrsti leikur í þrjár vikur.

,,Ég var hræddur. Þetta var fyrsti leikurinn minn í þrjár vikur. Sumir vildu að ég spilaði þennan leik og sumir vildu það ekki. Mér leið vel og er ég klár í næstu verkefni," sagði Ronaldo.

,,1-0 eru góð úrslit. Við erum með gott forskot og ef við skorum í næstu viku þá verður þetta erfitt fyrir Bayern að komast áfram í úrslitaleikinn. Seinni leikurinn mun reyna mikið á taugarnar

"Við erum með smá forskot og við skulum sjá til hvort það sé nóg,"
sagði hann að lokum.
Athugasemdir
banner
banner
banner