Kovac orðaður við stjórastól Liverpool - Newcastle vill Gibbs-White - Dewsbury-Hall orðaður við Tottenham
   fim 24. apríl 2014 05:55
Brynjar Ingi Erluson
Evrópudeildin - Leikir dagsins: Benfica - Juventus í opinni
Paul Pogba og félagar mæta Benfica
Paul Pogba og félagar mæta Benfica
Mynd: Getty Images
Undanúrslit Evrópudeildarinnar fara fram í kvöld en fyrri leikirnir fara þá fram en stærsta viðureignin er auðvitað leikur Juventus og Benfica.

Ítalska meistaraliðið Juventus byrjar heima gegna Benfica í dag en liðið leikur auðvitað á Juventus Stadium en úrslitaleikurinn fer einmitt fram á heimavelli ítalska liðsins.

Benfica tryggði sér portúgalska deildartitilinn í fyrsta sinn í fjögur ár á dögunum og því mikið sjálfstraust í hópnum en leikurinn verður í opinni dagskrá á Stöð 2 Sport.

Sevilla og Valencia mætast í hinum undanúrslitaleiknum en ljóst er að eitt spænskt lið tekur þátt í úrslitaleiknum.

Leikir dagsins:
19:05 Juventus - Benfica (Opinni dagskrá á Stöð 2 Sport)
19:05 Sevilla - Valencia
Athugasemdir
banner